Rafiðnaðarsambandi Íslands, Matvís, Samiðn,  Grafíu - stéttarfélagi í prent- og miðlunargreinum,  Félagi hársnyrtisveina og  Félagi vélstjóra og málmtæknimanna hyggjast kjósa um verkfall á næstunni.

„Fulltrúar ofangreindra stéttarfélaga og sambanda hafa á undanförnum vikum átt í viðræðum við SA um endurnýjun kjarasamninga," segir í tilkynningu. „Á fundi viðræðunefndar með fulltrúum SA  í dag  var niðurstaðan að það hefði ekki tilgang að halda viðræðum áfram vegna árangursleysis og mikils ágreinings um launalið samninga.

Viðræðunefndin beinir því til stéttarfélaganna að þau hefji nú þegar undirbúning að atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna um verkfallsheimild."