Íslensk erfðagreining greindi frá því í dag að hafnar séu prófanir á sjúklingum á nýju tilraunalyfi fyrirtækisins við æðakölkun í fótleggjum, eða svokölluðum útæðasjúkdómi. Markmið prófananna er að kanna öryggi lyfsins og þol meðal sjúklinga og áhrif mismunandi skammtastærða á samloðun blóðflagna og styrk ýmissa sameinda í blóðvökva sem vitað er að tengjast æðakölkun.

Stefnt er að því að 150 íslenskir sjúklingar muni taka þátt í þessum lyfjaprófunum. Hluti þeirra er með áhættuarfgerð erfðavísis sem vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar hafa sýnt fram á að valdi aukinni hættu á æðakölkun í fótleggjum.

Þátttakendum verður skipt í þrjá jafnstóra hópa. Sjúklingar í einum hópnum munu taka 100 mg af lyfinu tvisvar á dag, í öðrum 400 mg tvisvar á dag og þriðji hópurinn mun fá lyfleysu til viðmiðunar. Hver þátttakandi mun taka lyf eða lyfleysu í fjórar vikur.

Prófanirnar verða slembiraðaðar og tvíblindar sem felur í sér að þátttakendum verður raðað í meðferðarhópa með tilviljanakenndum hætti og hvorki þátttakendur né stjórnendur rannsóknanna munu vita fyrirfram hvaða meðferðarflokki hver þátttakandi tilheyrir.

?Þær rannsóknir sem við höfum gert á lyfinu fram að þessu, með þátttöku heilbrigðra einstaklinga, lofa góðu. Það er mikill skortur á meðferðarúrræðum við útæðasjúkdómi sem hrjáir tugi milljóna manna um allan heim og eykur verulega líkurnar á öðrum hjarta- og æðasjúkdómum," sagði Kári Stefánsson, forstjóri fyrirtækisins.

"Ég er mjög stoltur af því að vera nú að hefja annars stigs prófanir á þessu lyfi enda er þetta fyrsta lyfið sem vísindamenn fyrirtækisins hafa þróað frá grunni út frá niðurstöðum erfðarannsókna," sagði Kári.

b>Um útæðasjúkdóm (æðakölkun í fótleggjum)
Útæðasjúkdómur hrjáir um 10% fullorðinna í vestrænum löndum og yfir 20% þeirra sem komnir eru yfir sjötugt. Sjúkdómurinn lýsir sér í því að æðar þrengjast vegna myndunar æðaskellna og blóðstreymi til handa og fótleggja minnkar. Helstu einkenni sjúkdómsins er tímabundinn sársauki í fótleggjum við göngu eða æfingar. Ef sjúkdómurinn gengur svo langt að æð stíflast getur það leitt til dreps í útlimum. Engin lyfjameðferð er þekkt sem hefur áhrif á líffræðilegar orsakir sjúkdómsins eða kemur í veg fyrir framþróun hans.