Barnafatamerkið Ígló opnaði í gær sína fyrstu verslun í Kringlunni en vörur Ígló fást í tíu verslunum hér á landi og í sjö öðrum löndum.

Fyrirtækið var stofnað þann 6.október 2008 af Helgu Ólafsdóttur en Tinna Ólafsdóttir varð meðeigandi árið 2011.Tinna gegnir starfi framkvæmdastjóra en Helga er yfirhönnuður og þróunarstjóri Ígló.

Vörulína og kynningarherferð Ígló fyrir sumarið 2012 var nýlega valin sú besta í sínum flokki að mati Stylesight. Eigendurnir búast við að veltan vaxi um að minnsta kosti þriðjung á þessu ári en hún jókst verulega á milli áranna 2010 og 2011.

Hér má sjá viðtal VB sjónvarps við þær Helgu og Tinnu.