Fjárfestingarsjóðurinn Horn II íhugar að skrá fyrirtæki í sinni eigu í Kauphöll Íslands. Þetta kemur fram í viðtali Markaðarins við Hermann Þórisson, framkvæmdastjóra fyrirtækisins.
Meðal þessara fyrirtækja er Bláa lónið sem Hermann segir vera stórt og öflugt félag. „Ég held að það sé alveg klárlega kandídat til að fara á markaðinn,“ segir hann.
Einnig nefnir hann fyrirtækin Fáfni Offshore, Invest Farma og KEA Hotels. „Fáfnir er fyrirtæki sem væri mjög áhugavert að sjá fara á markað. Vissulega eru erfiðar markaðsaðstæður í olíugeiranum akkúrat í dag, en þær voru mjög góðar fyrir sex mánuðum,“ segir Hermann.
Um KEA Hotels segir hann að það sé ekki af sömu stærðargráðu og ákveðna lágmarksstærð þurfi til að fara á markaðinn. Því gæti það hugsanlega orðið kandídat á First North markaðinn.