Forsætisráðherra hefur skipað Illuga Gunnarsson aðstoðarmann utanríkisráðherra í framkvæmdanefnd um einkavæðingu samkvæmt tilnefningu utanríkisráðherra. Illugi tekur sæti Ólafs Davíðssonar ráðuneytisstjóra sem hefur að eigin ósk verið veitt lausn frá störfum í nefndinni.

Jóns Sveinsson, hæstaréttarlögmaður, er formaður einkavæðingarnefndar en stefnt er að sölu á Símanum á fyrri hluta komandi árs.