Illugi Gunnarsson, þingmaður í Reykjavík norður, hefur verið kjörinn formaður þingflokks sjálfstæðismanna.

Arnbörg Sveinsdóttir sem verið hefur þingflokksformaður undanfarin ár náði ekki kjöri í þingkosningunum 25. apríl.

Ragnheiður Elín Árnadóttir er varaformaður þingflokksins og Einar K. Guðfinsson ritari þingflokksins.

Þetta var ákveðið á þingflokksfundi í dag.