Illugi Gunnarsson, þingflokksformaður Sjáflstæðisflokksins, hefur ákveðið að taka leyfi frá þingstörfum á meðan sérstakur saksóknari skoðar hvort tilefni sé til að taka málefni sem snúa að peningamarkaðssjóðum bankanna til rannsóknar. Illugi var í stjórn Sjóðs 9 í Glitni. Fetar hann þar með í spor Björgvins G. Sigurðssonar sem tók sér tímabundið leyfi í gær.

Yfirlýsing Illuga er hér í heild:

„Ég hef ákveðið að taka leyfi frá þingstörfum og mun ég senda forseta Alþingis bréf þess efnis fyrir upphaf þingfundar á mánudaginn kemur.

Sú er ástæða ákvörðunar minnar, að rannsóknarnefnd Alþingis hefur vísað málum peningamarkaðssjóða til athugunar hjá sérstökum saksóknara.

Ég hef fengið hóp sérfræðinga til þess að lesa yfir þann kafla skýrslunnar sem snýr að störfum þeirrar stjórnar sem ég átti sæti í. Niðurstaða þeirrar skoðunar er sú að í skýrslunni sé ekki að finna dæmi um brot sem eru á ábyrgð stjórnarinnar, en benda megi á atriði sem betur hefðu mátt fara við rekstur sjóðanna, eins og áður hefur komið fram í opinberri umræðu.

Mat mitt er að sú óvissa sem myndaðist við þá ákvörðun nefndarinnar að vísa með almennum hætti málum peningamarkaðssjóðanna allra til sérstaks saksóknara, sé til þess fallin að draga úr tiltrú almennings á störfum mínum á Alþingi. Jafnframt kann þessi óvissa að skaða Sjálfstæðisflokkinn í þeirri miklu vinnu sem framundan er við endurreisn íslensks efnahagslífs og samfélags. Við það get ég ekki unað.

Ég treysti því að embætti sérstaks saksóknara ljúki sem fyrst skoðun sinni og að þessari óvissu linni. Ég er ekki í vafa um að niðurstaða þeirrar skoðunar verði jákvæð og gangi það eftir mun ég í kjölfarið taka aftur sæti á Alþingi."