Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur að fenginni umsögn stjórnar Lánasjóðs íslenskra námsmanna skipað Hrafnhildi Ástu Þorvaldsdóttur í embætti framkvæmdastjóra sjóðsins.
Hrafnhildur Ásta er skipuð til fimm ára frá 1. nóvember nk. að telja.
Hrafnhildur Ásta hefur starfað sem skrifstofustjóri í umhverfis- og auðlindaráðuneyti frá árinu 2004.