Í gær var frumvarpi dreift á Alþingi þar sem lagðar eru til breytingar á lögum um Ríkisútvarpið. Lagt er til að allir stjórnarmenn verði tilnefndir af Alþingi. Illugi Gunnarsson, menntamálaráðherra lagði fram frumvarpið.
Núna eru í gildi lög sem kveða á um að ráðherra velji einn áheyrnarfulltrúa en að sérstök valnefnd velji hina fimm. Ef þetta frumvarp nær í gegn mun Alþingi því skipa stjórnina. Illugi benti á í rökstuðningi sínum að það væri ólýðræðisleg aðferð að Alþingi fengi ekki að kjósa í stjórn RÚV. Alþingi væri lýðræðislega kjörin stofnun.