Íbúðalánasjóður átti 1.751 íbúð 20. febrúar og þar af eru 707 í leigu, að mestu til aðila sem bjuggu í eignunum þegar sjóðurinn eignaðist þær. 255 eignir eru óíbúðarhæfar en mestur hluti þeirra er ófullgerður. Þetta kemur fram í í Morgunblaðinu sem vísra til svars velferðarráðherra við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar alþingismanns um íbúðir í eigu Íbúðalánasjóðs. Í svarinu segir að 91 íbúð hafi nýlega komist í eigu sjóðsins og enn sé verið að vinna að gerð leigusamninga við þá aðila sem þar búi. Af þessum eignum sjóðsins séu flestar íbúðirnar á Suðurnesjum eða 529 en það sé næstum þriðjungur af öllum íbúðum sjóðsins.