Íbúðalánasjóður hefur ákveðið að ekki verði farið í frekari útboð íbúðabréfa á öðrum ársfjórðungi þessa árs en útlán sjóðsins hafa verið minni á öðrum ársfjórðungi en áður var gert ráð fyrir og hefur lausafjárstaða sjóðsins verið góð á tímabilinu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íbúðalánasjóð en þann 20. apríl 2009 s.l. birti sjóðurinn endurskoðaða áætlun varðandi útlán, útgáfu og greiðslur sjóðsins fyrir árið 2009.

Þar gerði sjóðurinn ráð fyrir að gefa út íbúðabréf að upphæð 8-10 milljarða á öðrum ársfjórðungi ársins, en samtals  nemur heildarútgáfa fjórðungsins 6,95 milljörðum króna að nafnverði.