Vegna fréttar í Viðskiptablaðinu í morgun um málefni Íbúðalánasjóðs vill Íbúðalánasjóður koma eftirfarandi á framfæri:

„Af frétt Viðskiptablaðsins má ráða að Íbúðalánasjóður vinni að því að breyta skilmálum útgefinna skuldabréfa sjóðsins. Slíkt er ekki framkvæmanlegt og verður aldrei gert án samstarfs við eigendur bréfanna. Það er rangt að Íbúðalánasjóður vinni að slíkum breytingum.

Fyrirætlanir sjóðsins varðandi útgáfu fjármögnunarbréfa hans í formi nýrra flokka til framtíðar byggja á því að sú fjármögnun verði uppgreiðanleg.“

Í Viðskiptablaðinu sem kom út í morgun segir að innan Íbúðalánasjóðs sé unnið að því að breyta skilmálum íbúðabréfa (HFF) þannig að þau verði uppgreiðanleg. Sjóðurinn hafi glímt við eiginfjárvanda og neikvæðan vaxtamun vegna uppgreiðslna viðskiptavina. Haft er eftir Sigurði Erlingssyni, framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs, að stærsta vandamál sjóðsins í dag sé það að skuldabréf útgefin af sjóðnum séu ekki uppgreiðanleg.