Frá júlíbyrjun 2003 fram í nóvember 2004 greiddi Impregilo íslenskum skattayfirvöldum 855.718.144 krónur í staðgreiðsluskatta og tryggingagjald vegna starfsmanna við Kárahnjúka. Ásakanir um að fyrirtækið svíki undan sköttum eru ósannar, ómaklegar og ósmekklegar segir í tilkynningu félagsins.

Portúgölsku starfsmannaleigurnar Select og Nett höfðu í nóvember 2004 greitt íslenskum skattayfirvöldum 60.028.612 (Select) og 70.076.859 (Nett) vegna staðgreiðsluskatta og tryggingagjalds sinna starfsmanna.

"Þá er rétt að taka það fram að portúgölsku starfsmannaleigurnar Nett og Select hafa einnig staðið skil á skattgreiðslum starfsmanna sinna. Skattgreiðslur þessarra fyrirtækja námu samtals 130.105.471 íslenskum krónum (fram í nóvember 2004)," segir í tilkynningu félagsins.

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum deilir Impregilo við skattayfirvöld um ákveðin atriði er varða skattlagningu portúgalskra starfsmanna Select og Nett. Impregilo lítur á starfsmennina sem starfsmenn starfsmannaleiganna, en ekki sína starfsmenn. Fyrirtækin líta því svo á að Select og Nett eigi að sjá um skattgreiðslur vegna portúgalskra verkamanna hér á landi, ekki Impregilo. Máli sínu til stuðnings hefur Impregilo bent á að starfsmannaleigurnar greiða þessum mönnum laun, samkvæmt portúgölskum ráðningarsamningum þeirra. Með samkomulagi sem náðist við verkalýðshreyfinguna í október 2003 er tryggt að þessum mönnum séu a.m.k. greidd laun sem nema íslenskum kjarasamningum. Ríkisskattstjóri heldur því hins vegar fram að starfsmenn starfsmannaleiganna séu starfsmenn Impregilo.

Select og Nett telja að portúgalskir starfsmenn sem starfa hér skemur en í 183 daga á ári séu ekki skattskyldir á Íslandi, heldur beri þeim að greiða skatta í Portúgal eins og fram kemur í tvísköttunarsamningi þjóðanna.

Tvísköttunarsamningur á milli Íslands og Portúgal var staðfestur árið 2002 og öðlaðist gildi 1. janúar 2003. Ríkisskattstjóri setti fram í byrjun árs 2005 þá kröfu, fyrir Yfirskattanefnd, að tvísköttunarsamningurinn væri ekki talinn hafa verið í gildi árið 2003, þar sem dregist hafði að auglýsa hann á Íslandi. Þessi málsástæða kom ekki fram árið 2004, enda er kenningin ný og í andstöðu við fyrri framkvæmd er varðar gildistöku annarra tvísköttunarsamninga sem Ísland hefur gert, samkvæmt upplýsingum skattasérfræðinga félaganna.

Vegna þessarra mála hefur Impregilo óskað eftir að Yfirskattanefnd úrkurði í málinu. Ekki er ólíklegt að úrskurður fáist síðar í þessum mánuði.