Iðnaðarráðherra hefur á grundvelli laga um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar, ákveðið að hækka niðurgreiðslur á beinni rafhitun íbúðarhúsnæðis um 0,12 kr/kWst frá og með 1. janúar 2010.

Þetta kemur fram á vef iðnaðarráðuneytisins en þar segir að ákvörðunin byggi á því að við samþykkt fjárlaga fyrir árið 2010 var samþykkt að veita 30,8 milljónum króna til að koma til móts við þá hækkun sem yrði hjá þeim sem nota raforku til húshitunar vegna tilkomu raforkuskatts samkvæmt lögum um umhverfis- og auðlindaskatta.

Í raun má því segja að iðnaðarráðuneytið sé að greiða niður þá skattahækkun sem tók gildi um áramótin.

Samkvæmt lögunum skal frá og með 1. janúar 2010 m.a. greiða í ríkissjóð sérstakan skatt af seldri raforku og er fjárhæð skattsins 0,12 kr./kWst af seldri raforku, en söluaðilar raforku annast innheimtu skattsins.

Á ver ráðuneytisins segir að markmið laga um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar sé að greiða niður kostnað við hitun íbúðarhúsnæðis hjá þeim sem ekki eiga kost á fullri hitun með jarðvarma og þannig að jafna húshitunarkostnað landsmanna.

Þá kemur fram að niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar hafa verið óbreyttar í kr/kWst frá árinu 2005 en á þeim tíma hafa gjaldskrár dreifiveitna þróast með mismunandi hætti.

„Í ljósi þessa hefur verið ákveðið að taka til endurskoðunar skiptingu niðurgreiðslna og stefnt að því að endurákvarða fjárhæð niðurgreiðslna innan skamms,“ segir á vef ráðuneytisins.