Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, hefur sett Indriða H. Þorláksson í embætti ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu til 30. apríl nk.

Baldur Guðlaugsson hefur fengið leyfi frá störfum ráðuneytisstjóra á sama tímabili segir á vef ráðuneytisins.

Indriði H. Þorláksson er fyrrverandi ríkisskattstjóri og var áður skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu.