Huginn Freyr Þorsteinsson hefur tekið við starfi aðstoðarmanns Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra af Indriða H. Þorlákssyni sem gegnt hefur starfinu undanfarna mánuði.

Indriði mun áfram starfa innan fjármálaráðuneytisins að sérverkefnum.

Huginn Freyr hefur áður starfað sem framkvæmdastjóri þingflokks Vinstri grænna, hann var aðstoðarmaður Þuríðar Bachmann alþingismanns og var einnig aðstoðarmaður Svavars Gestssonar í Icesave-samninganefndinni sem hann stýrði. Hann hefur að undanförnu kennt við háskólann á Akureyri.