Indverski lyfjaframleiðandinn Orchid Chemicals & Pharmaceuticals hefur falið Actavis að markaðssetja lyf félagsins í Evrópu. Indverska fyrirtækið greindi frá þessu í dag.

Actavis, sem er með starfsemi á Indlandi, mun markaðsetja níu cepahlosporin-lyf fyrir Orchid. Íslenska fyritækið hefur nú þegar leyfi til að selja 10 lyf fyrir Orchid í Bandaríkjunum.