Inga Birna Ragnarsdóttir, aðstoðarforstjóri og framkvæmdastjóri sölu og markaðssviðs Wow air, hefur tekið sæti í stjórn Wow Travel ehf. dótturfyrirtæki Wow air. Skúli Mogensen, forstjóri og eigandi Wow air tekur nú við stjórnarformennsku í Wow Travel af Margréti Ásgeirsdóttur, fv. eiginkonu sinni, sem gengur úr stjórninni.

Inga Birna Ragnarsdóttir
Inga Birna Ragnarsdóttir
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Þá er Inga Birna nú einnig prókúruhafi ásamt Skúla en hún tekur við af honum sem framkvæmdastjóri félagsins.

Loks hefur Wow travel skipt um endurskoðendur. KPMG er nýtt endurskoðunarfélag fyrirtækisins í stað Endurskoðunar og ráðgjafar ehf. og Eymundar Sverris Einarssonar. KPMG er jafnframt endurskoðunarfyrirtæki Wow air.

Inga Birna var ráðin framkvæmdastjóri Wow travel (sem hét áður Wow ferðir) í ágúst sl. Hún starfaði áður hjá Icelandair og 365.