Inga Hrefna Sveinbjarnardóttir
Inga Hrefna Sveinbjarnardóttir
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Inga Hrefna Sveinbjarnardóttir hefur verið ráðin sem aðstoðarmaður Kristjáns Þórs Júlíussonar, heilbrigðisráðherra. Inga Hrefna er 31 árs og hefur lokið BA námi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands.

Inga Hrefna hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra þingflokks Sjálfstæðisflokksins síðan í haust. Frá árinu 2007 hefur hún starfað á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í Valhöll meðal annars sem framkvæmdastjóri Varðar, fulltrúaráðsins í Reykjavík.