Inga Lind Karlsdóttir og Hlynur Sigurðsson hafa stofnað saman fyrirtækið Skot – productions. Þau hafa bæði langa reynslu af fjölmiðlastörfum og dagskrárgerð.


Hlynur Sigurðsson
Hlynur Sigurðsson
Í samtali við Viðskiptablaðið segir Hlynur að hið nýja fyrirtæki sé ekki stofnað í kringum neitt sérstakt verkefni. Um sé að ræða framleiðslufyrirtæki sem muni fyrst og fremst sinna innlendri dagskrárgerð. Spurður um það hvort félagið muni fyrst og fremst sinna fréttatengdum verkefnum segir Hlynur svo ekki vera. „Það er ekki pælingin, þrátt fyrir að bakgrunnurinn okkar sé kannski öðrum þræði þaðan,“ segir Hlynur.

Hann segir þau Ingu hafa þekkst lengi en ekki unnið saman áður með formlegum hætti. „Í staðinn fyrir að vera tvö í sínu horni þá ætlum við að leiða saman hesta okkar á þenann hátt, leita að verkefnum og vonandi gera skemmtilega hluti,“ segir Hlynur.