Inga María Backman hefur verið ráðin sérfræðingur fyrir skýja- og öryggislausnir hjá Origo. Markmið Ingu verður að auka ráðgjöf til viðskiptavina fyrir þær lausnir sem eru í boði hjá fyrirtækinu. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

Inga María hefur víðtæka starfsreynslu í upplýsingatækni. Hún var áður verslunarstjóri hjá EJS (nú Advania) og viðskiptastjóri og Microsoft ráðgjafi hjá Advania.

Hún lýkur meistaragráðu í rekstrarverkfræði við Háskólann í Reykjavík í vor. Hún lauk einnig Bachelor í iðnaðar- og vélaverkfræði við Háskóla Íslands 2010.

Inga María er mikil dansáhugamanneskja og kennir dans hjá SalsaIceland. Hún hefur einnig mikla ástríðu fyrir matreiðslu og er einn af eigendum veitingastaðarins Matur og drykkur. Þegar stund gefst milli stríða gengur hún á fjöll eða skellir sér á snjóbretti.