Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs (VG) samþykkti í morgun að leggja til að viðskiptanefnd Alþingis kanni þegar í stað lagalegar forsendur þess að hægt verði að kyrrsetja tímabundið allar eignir innlendra fjármálafyrirtækja sem komist hafa í þrot, eigenda þeirra og tengdra aðila hér á landi og setja bann við kvers kyns ráðstöfun, sölu, veðsetningu o.s.frv.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá þingflokki VG.

Þá er einnig lagt til að leggja megi hald á og eftir atvikum heimta til landsins eignir sömu aðila erlendis, „allt í því skyni að gæta hagsmuna þjóðarbúsins,“ eins og það er orðað í tilkynningu VG.

Þingflokkur VG segir nærtækast að taka slíkar tímabundnar frystingarheimildir sem viðbótarákvæði inn í neyðarlögin frá mánudeginum 6. október og stefna að lögfestingu þeirra í næstu viku.

Þá kemur fram að við lagasetninguna yrði sérstaklega höfð hliðsjón af þeirri opinberu rannsókn sem nú er að fara af stað á vegum sérskipaðs ríkissaksóknara.

„Leiki minnsti grunur á að eignum hafi með beinum hætti verið skotið undan á undangengum mánuðum og misserum ber að sjálfsögðu að meðhöndla slík mál tafarlaust sem sakamál,“ segir í tilkynningu VG.