Dohop hefur ráðið til sín þrjá nýja sérfræðinga til að styðja við frekari vöxt félagsins. Það eru þeir Ingi Fjalar Magnússon, Daði Steinn Brynjarsson og Kristján Þór Jónsson. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Dohop.

Ingi Fjalar Magnússon verður tæknilegur vörustjóri hjá Dohop. Um er að ræða stöðu sem ýtir undir enn frekara þróunarstarf félagsins sem stefnir á að efla markaðsdrifna sókn sína á alþjóðlegum mörkuðum að því segir í tilkynningunni. Ingi Fjalar hefur um 20 ára reynslu af verkefnastjórnun, hugbúnaðarþróun og innleiðingu tölvukerfa, bæði erlendis og hér heima. Hann starfaði meðal annars um 11 ára skeið sem verkefnisstjóri hjá alþjóðlega fyrirtækinu Statoil þar sem hann vann að uppbyggingu hugbúnaðar og innleiðingu tölvukerfa í Noregi, Suður-Kóreu og Skotlandi.

Einnig hefur hann starfað hjá Össuri, Nordea bankanum og Applicon.  Ingi Fjalar er með MBA gráðu frá BI Viðskiptaháskólanum í Noregi ásamt því að vera tölvunarfræðingur frá Háskóla Íslands.

Daði Steinn Brynjarsson tekur við starfi forritara. Daði lauk námi við tölvunarfræði hjá Háskólanum í Reykjavík síðastliðið haust og kom til Dohop í beinu framhaldi. Daði er partur af teymi sem sér meðal annars um að hanna hugbúnað til að betrumbæta þjónustu til viðskiptavina Dohop. Innan teymisins mun Daði leggja hjálparhönd sem viðmótsforritari.

Kristján Þór Jónsson hefur verið ráðinn sem nýr hugbúnaðarsérfræðingur hjá Dohop. Hann mun starfa í teymi sem sér um greiðslulausnir Dohop þar sem hann mun vinna við að þróa áfram bókunarkerfið til að taka við greiðslum hnökralaust. Kristján er með BSc í fjármálaverkfræði og einnig í hugbúnaðarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hann starfaði við hátíðniviðskipti síðastliðin fjögur ár fyrir World Financial Desk.

Dohop er tæknifyrirtæki stofnað á Íslandi árið 2004. Grunntækni Dohop snýst um smíða tengiflug og hjálpa flugfélögum að selja tengiflug í félagi við önnur flugfélög. Dohop hefur þróað tækni fyrir flugfélög, flugvelli og samtök flugfélaga um allan heim á borð við easyJet, Transavia, Eurowings, Jetstar, Gatwick og SkyTeam.

Íslenska ferðatæknifyrirtækið tryggði sér nýlega á annan milljarð íslenskra króna í fjármögnun frá Scottish Equity Partners (SEP), breskum fjárfestingasjóði sem sérhæfir sig í fjárfestingum í vaxandi tæknifyrirtækjum. Dohop hyggst nýta fjármagnið til þess að byggja upp félagið og ráða fólk með tækniþekkingu á Íslandi en höfuðstöðvar félagsins eru hér á landi segir í tilkynningunni.