Þann 1. október sl. var rekstur MerckSerono á Íslandi fluttur til Icepharma, en MerckSerono hefur hingað til verið hjá nokkrum umboðsaðilum með mismunandi lyf. MerckSerono er frumlyfjafyrirtæki sem þróar lyfseðilsskyld lyf til meðferðar við fjölda sjúkdóma, meðal annars taugasjúkdómum, krabbamein, MS og við ófrjósemi eins og segir í frétt á heimasíðu félagsins.

Markaðsstjóri MerckSerono hjá Icepharma verður Ingi Þór Ágústson.