Ingi Rafn Ólafsson hefur verið ráðinn sviðsstjóri á prenttæknisviði IÐUNNAR fræðsluseturs, að því er kemur fram í frétt á vefsíðu Samtaka iðnaðarins. Björn M. Sigurjónsson sagði starfi sínu lausu í febrúar síðastliðnum. Starfið var auglýst og sóttu 29 einstaklingar um stöðuna.

Ingi Rafn Ólason.
Ingi Rafn Ólason.

Ingi Rafn starfaði áður sem framkvæmdastjóri Prenttæknistofnunar frá 2001 til 2005 og undanfarin ár sem markaðs- og kynningarstjóri Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands. Hann mun hefja störf að fullu frá og með 1. maí.