Félagið Apogee, sem er í eigu félaga á vegum Ingibjargar Pálmadóttur, forstjóra og aðaleiganda 365 miðla, hefur keypt 14,5% hlut fagfjárfestasjóðsins Auðar I í A-flokki í fjölmiðlafyrirtækinu. Vísir greinir frá því að eftir viðskiptin eigi félög á vegum Ingibjargar samanlagt um 90,5% A-hluta í 365 miðlum.

Apogee á fyrir 61% hlut í B-flokki 365 miðla á móti 39% hlut fyrirtækisins sjálfs.

Sjóðurinn Auður I, sem er í rekstri Kviku, eignaðist 14,5% hlut í 365 miðlum við sameiningu 365 og fjarskipafélagsins Tals árið 2014.