Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra ræddi í dag við Condoleezu Rice utanríkisráðherra Bandaríkjanna um stöðu íslenska fjármálakerfisins og þær lausnir sem unnið er að.

Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir að Rice hafi lýst yfir áhyggjum af málinu og að hún myndi taka það upp við aðra fulltrúa bandarískra stjórnvalda. Þá lýsti Ingibjörg Sólrún afstöðu Íslendinga til viðbragða annarra ríkja, þar á meðal Breta, aukinheldur hvers kyns heildaráhrif viðburðir liðinna vikna gætu haft.