Ingibjörg Björnsdóttir og Hrafnhildur Stefánsdóttir hafa þegar hafið störf hjá Samtökum atvinnulífsins (SA). Fyrr í mánuðinum lét Álfheiður M. Sívertsen, starfsmaður samtakanna til 15 ára, af störfum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá SA.

Ingibjörg hefur verið ráðin til SA sem lögmaður á vinnumarkaðssviði samtakanna. Hún er með embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands og málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi. Auk þess er hún viðurkenndur bókari frá Háskóla Reykjavíkur. Ingibjörg hefur áður starfað sem löglærður fulltrúi hjá Lögmönnum í Skipholti og LOGOS lögmannsþjónustu ásamt því að hafa starfað sem lögmaður hjá EMBLU lögmönnum og ACTIO ráðgjöf.

Hrafnhildur Stefánsdóttir
Hrafnhildur Stefánsdóttir
Hrafnhildur hefur verið ráðin skjalastjóri SA. Hún er  bókasafns- og upplýsingafræðingur frá Háskóla Íslands. Auk þess að vinna fyrir SA mun hún veita félögum í Húsi atvinnulífsins ráðgjöf við upplýsingastjórnun.

Álfheiður M. Sívertsen
Álfheiður M. Sívertsen

Álfheiður, sem starfaði sem lögmaður á vinnumarkaðssviði SA, lét af störfum fyrr í desember. Hún hefur tekið við nýju starfi sem forstöðumaður áhafnadeildar Icelandair.