Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra gengst undir aðgerð á Landsspítalanum- Háskólasjúkrahúsi í dag.

Aðgerðin var fyrirhuguð og er mun minni en sú sem hún gekkst undir í New York 29. september síðastliðinn.

Ekki er ljóst hversu mikið ráðherra verður frá vinnu vegna þessa.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.