Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra segir kjör Barack Obama til forseta Bandaríkjanna hafa mikla táknræna þýðingu.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem ráðherrann sendi frá sér fyrir stundu.

Þar kemur fram að Ingibjörg Sólrún segir kjörið breyta ásýnd Bandaríkjanna bæði innanlands og utan.

„Það felur í sér nýtt tækifæri fyrir Bandaríkin til að verða forysturíki á sviði lýðræðis og friðar í heiminum,“ segir Ingibjörg Sólrún í yfirlýsingunni.

„Það er örugglega einsdæmi að jafn margar einlægar óskir eins víða að úr heiminum fylgi nýkjörnum forseta. Heimurinn treystir því að hann beiti sér fyrir aðgerðum á heimsvísu sem geta linað efnahagskreppuna sem nú skekur heiminn og hann leggi sig fram um að lægja öldur átaka, í stað þess að reisa þær, ekki síst í Mið-Austurlöndum.“

Þá segir Ingibjörg Sólrún að kjör Obama opni Íslendingum nýja möguleika.

„Frá brotthvarfi bandaríkjahers frá Íslandi hefur það verið verkefni okkar að þróa ný og mikilvæg tengsl á sviði menningar og viðskipta við nágranna okkar í vestri og aðkoma nýs forseta getur haft þar mikla þýðingu,“ segir Ingibjörg Sólrún í yfirlýsingunni.