Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, veiktist í fyrradag á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York og varð að hætta þátttöku í pallborðsumræðum þar sem hún var með framsögu um þróunarsamvinnu og konur í Afríku.

Þetta kemur fram á vef utanríkisráðuneytsins.

Að læknisráði var utanríkisráðherra færð til rannsókna á Mount Sinai sjúkrahúsið þar sem orsökin fannst en í ljós kom lítið góðkynja mein í höfði, segir á vef ráðuneytisins.

Þá kemur fram að meðhöndla þarf meinið og verður það gert á næstu dögum og vikum. Ráðherra mun engu að síður taka þátt í dagskrá í tengslum við allsherjarþingið.

Læknar telja ekki þörf á langri fjarveru ráðherra frá vinnu vegna þessa.