Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, átti í gær fund með utanríkisráðherra Eistlands, Urmas Paet. Ingibjörg var í opinberri heimsókn í Eistlandi en ráðherrarnir ræddu ýmis samskipti ríkjanna, samstarfið innan Atlantshafsbandalagsins og samstarf ríkjanna á grundvelli EES-samningsins.

Ingibjörg þakkaði stuðning Eistlands við framboð Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, en Eistland hefur tekið beinan þátt í kosningabaráttu Íslands á undanförnum misserum.

Ingibjörg Sólrún heimsótti einnig eistneska þjóðingið og var gestur í morgunþætti eistneska ríkissjónvarpsins. Loks kynnti hún sér starfsemi varnarmiðstöðvar um netöryggi sem verið er að byggja upp í Tallinn að frumkvæði Eistlands, innan vébanda Atlantshafsbandalagsins.