Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra er væntanleg heim í vikulokin og mun þá verða lögð inn á Landspítala háskólasjúkrahús þar sem læknar munu taka ákvörðun um framhaldið.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu en Ingibjörg Sólrún hefur dvalist á Karolínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi síðastliðna viku.

Þar gekkst hún undir aðgerð þar sem sýni voru tekin vegna heilaæxlis og hluti þess jafnframt fjarlægður. Í tilkynningu kemur fram að aðgerðin hafi heppnast vel en ákvörðun um frekari meðferð liggur ekki fyrir.