Forseti Íslands hefur boðað Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, formann Samfylkingarinnar og Steingrím J. Sigfússon, formann VG til fundar á Bessastöðum í dag kl. 11:00.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá skrifstofu forsetans en þar kemur fram að forseti mun að loknum þeim fundi hugsanlega ræða við fréttamenn.