Fastaráð Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, ÖSE, samþykkti í dag með formlegum hætti að skipa Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur sem næsta framkvæmdastjóra Lýðræðis- og mannréttindastofnunar ÖSE, ODIHR, sem hefur aðsetur í Varsjá.

Skipunin er til þriggja ára og tekur Ingibjörg til starfa undir lok vikunnar eins og Viðskiptablaðið hefur þegar greint frá að stæði til. „Þetta er fagnaðarefni enda um eina af áhrifamestu stöðum sem Íslendingur hefur gegnt á alþjóðavettvangi,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.

„Ingibjörg Sólrún er mjög vel að þessu komin, hún hefur til að bera þá þekkingu og reynslu sem þarf til að stýra þessari mikilvægu stofnun á erfiðum tímum í alþjóðamálum. Skipun hennar brýnir okkur jafnframt til góðra verka því hún beinir athyglinni að Íslandi og þeim gildum sem íslensk þjóð og okkar utanríkisstefna stendur fyrir - lýðræði, mannréttindi og jafnrétti.“

Utanríkisráðuneytið studdi framboðið

Utanríkisráðuneytið hefur stutt við framboð Ingibjargar Sólrúnar, en hún atti kappi við frambjóðendur frá Svíþjóð og Serbíu. Skipun hennar er hluti skipunar í fjórar æðstu stöður ÖSE, þar með talinn framkvæmdastjóra stofnunarinnar en samkomulag náðist á óformlegum utanríkisráðherrafundi ÖSE í síðustu viku.

„ODIHR stendur vörð um lýðræði og mannréttindi og er eitt mikilvægasta tækið sem ríki Evrópu, Mið-Asíu og Norður-Ameríku eiga til þess. Þetta er vissulega mikil áskorun en einnig einstakt tækifæri til að vinna þessum gildum brautargengi og ég er þakklát þeim stuðningi sem ég og mitt framboð í nafni Íslands hefur hlotið", segir Ingibjörg Sólrún, en samstöðu 57 aðildarríkja ÖSE þurfti til að hljóta stöðuna.

ODIHR er stærsta undirstofnun ÖSE með um 150 manna starfslið en á meðal helstu verkefna hennar er kosningaeftirlit í aðildarríkjum ÖSE, úttektir á lagasetningu, verkefni og þjálfun á sviði mannréttinda, jafnréttis, lýðræðislegra stjórnarhátta og baráttunnar gegn hatursglæpum.