Reiknistofa Bankanna hefur ráðið Ingibjörgu Arnarsdóttur sem framkvæmdastjóra fjármálasviðs.

Ingibjörg starfaði hjá Valitor á árunum 2008 til 2016 sem framkvæmdastjóri áhættustýringar, fjármála, stjórnunar og mannauðs. Hún kom einnig að uppbyggingu erlendrar starfsemi félagsins. Áður starfaði hún sem lánastjóri hjá Glitni árin 2007 og 2008, framkvæmdastjóri heildverslunar Karls K. Karlssonar frá 2001 til 2007.

Ingibjörg lauk Cand. Oecon prófi í viðskiptafræði af endurskoðunarsviði Háskóla Íslands 1996 og meistaraprófi í fjármálum frá Cass Business School í London 2000.