Laun forstjóra Íslandspósts námu 25 milljónum króna á síðasta ári og hafa hækkað um 78% á þremur árum. Í nýbirtum ársreikningi Íslandspósts kemur fram að laun Ingimundar hafi hækkað úr 20 milljónum í 25 milljónir milli áranna 2017 og 2018. Laun Ingimundar námu 17 milljónum króna árið 2016 og 14 milljónum króna árið 2015.

Í bréfi stjórnar Íslandspóst til fjármálaráðherra vegna launasetningar ríkisforstjóra sagði að laun Ingimundar hafi hækkað úr 1.436 þúsund krónum í 2.052 þúsund krónur á mánuði frá ársbyrjun 2017 til 1. maí 2018.

Stjórnin hafi árið 2017 látið Intellecta gera könnun á hver laun forstjóra sambærilegra fyrirtækja og Íslandspósts væru á bilinu 2,7 og 3,6 milljónir króna á mánuði. Þá haf forstjóralaun Íslandspósts hækkað mun minna en launavísitala á árabilinu 2008 til 2017.

Afkoma Íslandspósts versnaði töluvert á síðasta ári og nam tap félagsins 293 milljónum króna í fyrra miðað við 216 milljón króna hagnað árið 2017.

Uppfært: Síðdegis tilkynnti Ingumundur að hann hefði ákveðið að segja starfi sínu lausu .