Í dag fór fram aðalfundur Landsvirkjunar með hefðbundnum hætti þar sem ný stjórn Landsvirkjunar var kjörin, þau Bryndís Hlöðversdóttir, Gylfi Árnason, Ingimundur Sigurpálsson, Jóna Jónsdóttir og Páll Magnússon.

Eftir ársfundinn hélt ný stjórn stuttan fund til að skipta með sér verkum.  Þar var Ingimundur Sigurpálsson kjörinn stjórnarformaður og Bryndís Hlöðversdóttir varaformaður.

Þeir Ágúst Einarsson, Valdimar Hafsteinsson og Valur Valsson ganga úr stjórn Landsvirkjunar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsvirkjun.