Nýr styrktarsjóður hefur verið stofnaður við Háskóla Íslands. Sjóðurinn ber heitið Ingjaldssjóður, og er stofnaður til minningar um Ingjald Hannibalsson, prófessor við viðskiptafræðideild háskólans.

Ingjaldur arfleiddi háskólann að öllum eigum sínum þegar hann lést fyrir rúmu ári. Stofnfé sjóðsins er 70 milljónir króna.

Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, undirritaði stofnskrá Ingjaldsjóðs við hátíðlega athöfn á Litla torgi í gær, á fæðingardegi Ingjalds.

Við athöfnina á Litla torgi í gær söng Kvennakór Háskóla Íslands við píanóundirleik. Var leikið undir á flygli sem Ingjaldur átti og stendur nú á Litla torgi.

Með yfirumsjón sjóðsins fer rektor. Þriggja manna stjórn sjóðsins skipa þau Runólfur Smári Steinþórsson prófessor við viðskiptafræðideild, Karólína Eiríksdóttir tónskáld og Þórður Sverrisson viðskiptafræðingur.