Ingólfur Helgason, forstjóri Kaupþings banka á Íslandi, keypti í dag 400 þúsund hluti í bankanum á genginu 665 krónur á hlut, segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands.

Þar segir að eftir viðskiptin á Ingólfur 2.800.075 hluti í bankanum. Ingólfur á kauprétt að 60 þúsund hlutum í bankanum og sölurétt að 750 þúsund. hlutum.

Fjárhagslega tengdir aðilar eiga enga hluti í bankanum, að sögn Kaupþings banka.