Ingólfur Rúnar Ingólfsson hefur verð ráðinn forstöðumaður hagdeildar hjá Samskipum. Ingólfur er viðskiptafræðingur með Cand oecon gráðu frá Háskóla Íslands og MBA gráðu frá Instituto De Empresa í Madrid. Hann er einnig löggiltur verðbréfamiðlari frá Háskóla Íslands.

Ingólfur Rúnar Ingólfsson.
Ingólfur Rúnar Ingólfsson.

Ingólfur hefur starfað við fjármál og uppgjör í í nær tvo áratugi. Hann var starfsmaður Íslandsbanka og síðar Glitnis banka frá 2001 – 2008, lánastjóri hjá skilanefnd Glitnis frá 2009 – 2011 og fjármálastjóri Gagnavörslunnar hf. frá 2011 – 2012.