Samkomulag hefur orðið um að Ingólfur V. Guðmundsson, framkvæmdastjóri Byrs verðbréfa, láti af störfum hjá fyrirtækinu frá og með deginum í dag.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Byr en samkomulagið er sagt gert í fullri sátt á milli aðila og Ingólfi þökkuð góð störf hjá Byr.

Mjöll Flosadóttir sem er forstöðumaður innri endurskoðunar hjá Byr mun tímabundið stýra Byr verðbréfum og á sama tíma mun Björn Steinar Pálmason tímabundið stýra Innri endurskoðun Byrs.