Ingþór Karl Eiríksson var í dag kosinn sem nýr stjórnarmaður hjá Farice, sem rekur sæstrengina Farice og Danice á milli Íslands og Evrópu. Hann tekur sæti Egils Tryggvasonar sem hefur sagt sig úr stjórninni, að því er fram kemur í tilkynningu.

Nokkrar breytingar hafa átt sér stað hjá Farice upp á síðkastið í kjölfar fjárhagslegrar endurskipulagningar en skemmst er að minnast þess þegar Guðmundur Gunnarsson var látinn taka poka sinn í nóvember í fyrra. Við starfi hans tók Ómar Benediktsson skömmu fyrir síðustu jól.