Ingvar Smári Birgisson var kjörinn nýr formaður Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, á aðalfundi félagsins í gærkvöld. Fráfarandi formaður, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, gaf ekki kost á sér til endurkjörs.

Ingvar Smári hlaut 302 atkvæði, eða 52,4% atkvæða, en mótframbjóðandi hans, Jórunn Pála Jónasdóttir hlaut 274 atkvæði, eða 47,6% atkvæða.

Í stjórn Heimdallar voru auk Ingvars Smára kjörin:

  • Aníta Rut Hilmarsdóttir
  • Bryndís Bjarnadóttir
  • Egill Fannar Halldórsson
  • Hilmar Freyr Kristinsson
  • Ingimar Tómas Ragnarsson
  • Jakob Steinn Stefánsson
  • Jónatan Jónatansson
  • Kjartan Örn Yeoman
  • Sindri Ástmarsson
  • Sylvía Dagmar
  • Briem Friðjónsdóttir