Ingvi Hrafn Óskarsson
Ingvi Hrafn Óskarsson
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Ingvi Hrafn Óskarsson hdl. hefur bæst í eigendahóp lögmannastofunnar GHP Legal ehf. Ingvi hefur undanfarin ár starfað hjá Íslandsbanka sem forstöðumaður lögfræðiráðgjafar og sem verkefnastjóri í fyrirtækjaráðgjöf.

Ingvi var áður aðstoðarmaður dóms- og kirkjumálaráðherra og á Lögfræðiskrifstofunni Garðastræti 17. Ingvi hefur auk embættisprófs frá Háskóla Íslands lokið meistaraprófi í lögum frá Columbia háskóla og meistaraprófi í fjármálum frá London Business School. Þá hefur hann auk réttinda til málflutnings í héraði lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.