Ingvi J. Ingvason hefur verið ráðinn rekstrarstjóri bensínstöðva hjá Skeljungi frá og með 1. ágúst, að því er segir í fréttatilkynningu.

Ingvi útskrifaðist sem rekstrariðnfræðingur frá Tækniskóla Íslands árið 1989. Hann hefur starfað hjá Skeljungi í 12 ára, fyrst hjá söludeild fyrirtækisins frá árinu 1996 og sem sölustjóri á fyrirtækjasviði frá árinu 1999. Því starfi gegndi hann svo næstu sjö árin, er hann tók við starfi rekstrarstjóra á neytendasviði á árinu 2006.