Inkasso og Inkasso Löginnheimta hafa flutt starfsemi sína að Hlíðasmára 4 Kópavogi. Fyrirtækið er staðsett á annarri hæð hússins.

Inkasso og Inkasso Löginnheimta hafa undanfarin fjögur ár verið staðsett á sextándu hæð í Turninum í Kópavogi en hafa flutt í mun stærra húsnæði þar sem hið gamla var orðið of lítið fyrir starfsemi félagsins.

„Með því að færa okkur í þetta húsnæði þá erum við að taka stórt skref í þá átt að vera aðgengileg öllum þeim sem vilja eða þurfa að eiga við okkur jákvæð samskipti,“ segir Haraldur Leifsson framkvæmdastjóri Inkasso.