Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra kynnti sér í gær samgöngu- og sveitarstjórnarmál á Suðausturlandi í fylgd aðstoðarmanna, ráðuneytisstjóra og vegamálastjóra. Ráðherra ræddi meðal annars við fulltrúa sveitarstjórna á Höfn og Skaftárhreppi, ræddi við sýslumanninn á Höfn og vegamálstjóri greindi frá ýmsum umfangsmiklum framkvæmdum sem framundan eru á næstu árum samkvæmt samgönguáætlun.

Á fundi með fulltrúum sveitarfélagsins Hornafjarðar var meðal annars rætt um nýja veglínu við Höfn og nýja brú yfir Hornafjarðarfljót, málefni hafnarinnar og fleira. Eftir fund með sveitarstjórn var litið við í starfssöð Vegagerðarinnar hjá Reyni Gunnarssyni og samstarfsmönnum hans.

Ráðherra átti einnig fund með sýslumanni á Höfn og á leiðinni frá Höfn að Kirkjubæjarklaustri kynnti vegamála fyrir ráðherra ýmsar fyrirhugaðar breytingar á veglínu Hringvegarins meðal annars við Skaftafell og vegna breytinga á rennsli Skeiðarár. Einnig sýndi ráðherra hvernig mögulegt er að breyta veginum við Jökulsá á Breiðamerkursandi og framtíðarlegu Hringvegar um Síðu. Síðan var fundur með sveitarstjórnarfulltrúum Skaftárhrepps.

Í dag á innanríkisráðherra meðal annars fundi með sveitarstjórnum í Mýrdalshreppi og Árborg og ræðir við sýslumenninna í Vík, Hvolsvelli og á Selfossi.