Innflutningur bíla dróst saman um 20% í apríl, borið saman við sama mánuð í fyrra, en áður hafði hann dregist saman um 11% í mars. Innflutningur bíla var hins vegar meiri á fyrstu 2 mánuðum ársins í ár en í fyrra.

Innflutningur bíla nemur 9,4 milljörðum fyrstu fjóra mánuði ársins en var 7,3 milljarðar á sama tímabili í fyrra. Frá þessu er sagt í Vegvísi Landsbankans.