Innflutningur á fjárfestingavörum jókst þó nokkuð á fyrstu sex mánuðum ársins, sé leiðrétt fyrir gengisstyrkingu krónunnar. Það gefur vísbendingar um að atvinnulífið sé að mæta þeirri uppsöfnuðu fjárfestingarþörf sem til staðar er víða í hagkerfinu, einkum á húsnæðismarkaði.
„Innflutningur á fjárfestingarvörum hefur aukist um 17% á fyrstu sex mánuðum ársins, þegar búið er að leiðrétta fyrir gengisbreytingum. Það bendir til talsverðrar fjárfestingar,“ segir Erna Björg Sverrisdóttir, hagfræðingur hjá greiningardeild Arion banka.
„Erfitt er að segja nákvæmlega til um það hvar þessi fjárfesting kemur fram í hagkerfinu. Það má þó reikna með að hluti af innflutningnum sé að mæta fjárfestingarþörfinni á húsnæðismarkaði, enda hefur fjárfesting íbúðarhúsnæðis sótt í sig veðrið upp á síðkastið,“ segir Erna. Sérstaklega stendur byggingargeirinn undir miklum innflutningi fjárfestingarvara, til dæmis steypustyrktarjárni.
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast pdf-útgáfu af blaðinu með því að smella á hlekkinn Tölublöð .